|
VerkfæriÁ öðrum tungumálum
|
Wikipedia:PotturinnPotturinn er, auk WikiIS-l póstlistans og IRC spjallrásarinnar #is.wikipedia á Freenode almennur umræðuvettvangur íslensku Wikipediu. Vinsamlegast mundu eftir að skrifa undir og tímasetja athugasemdir þínar með því að skrifa ~~~~ fyrir aftan þær eða með því að ýta á undirskriftartáknmyndina. [breyta] Interview with Åse KlevelandThe English Wikinews is going to be organizing an interview with the former Norwegian Culture Minister Åse Kleveland. She was also the head of the Swedish Film Institute and is now the chairwoman of the Norwegian Humanist Association. I am asking Wikipedians from all of the Scandinavian languages to contribute questions to her upcoming interview with Wikinews in Oslo. The page is here; please leave questions there and comments to me either on my en.wikinews talk page or my en.wikipedia talk page. Thank you very much! Mike Halterman 1. júlí 2008 kl. 22:29 (UTC) [breyta] UDHR volunteer anyone?Hello all, Could I make a request for a volunteer to read the Universal Declaration of Human Rights in Icelandic for librivox.org? I sure hope I not breaking the rules of Wikipedia. (Please visit http://librivox.org/forum/viewtopic.php?t=14416 for more details on this project) Again, I apologise if I am flouting the regulations enforced in Wikipedia. Thank you! [breyta] Saga íslenska skólakerfisins og mennta fyrir þaðVeit einhver um síðu(r) sem fjalla(r) um íslenska menntakerfið fyrr og síðar? Ég hef farið í gegnum síðu menntamálaráðuneytisins en þar finn ég ekkert um sögu þess, landsprófin og annað. Mig langar að vinna að Education in Iceland, sem er nú þegar er gæðagrein þökk sé Max Naylor. Tengar á góðar ritgerðir væru vel þegnir. --Stefán Örvarr Sigmundsson 3. júlí 2008 kl. 00:35 (UTC)
Er ekki hæpið að tala um 100 ára afmæli KHÍ? Sá skóli varð ekki til fyrr en eitthvað um 1970 og er því líklega ekki meira en fertugur. Hins vegar er Kennaraskóli Íslands fyrirrennari hans. Hann var stofnaður líklega 1908 og var lagður niður sem slíkur þegar KHÍ var stofnaður. --Mói 3. júlí 2008 kl. 14:24 (UTC) [breyta] Hvað heita táknin?Ég ætlaði að skrifa grein um HTML, en rak mig þá á að ég vissi ekki hvað <> (svigarnir) heita. Þeir eru mikið notaðir í HTML svo: hvað heita þeir? --88.149.118.189 6. júlí 2008 kl. 14:37 (UTC) Þetta eru hornklofar eða hornklof [] [1] og [2] og <> sem voru hluti af gæsalöppum hér áður fyrr [3] [4] og nefnast á ensku angle brackets or chevrons: < > [5]. Hm ég er að reyna leiða sjálfan mig að svarinu, en ég finn það ekki. Þetta ætti að heita sperruklofar eða vinkilklofar eða..já, hvað nefnast þessi blessuðu tákn? Nei, oddklofar. Þarna kom það eða olnbogasvigar. Stundum þarf maður bara að leiða sjálfan sig upp á fjöll til að finna svarið. [6] --85.220.89.229 6. júlí 2008 kl. 15:13 (UTC)
[breyta] íslensk myndasöfn - Commons:OTRS og fleiraHefur einhver hérna prófað þetta OTRS kerfi? Ég velti fyrir mér hvort það sé aðferð til að setja inn myndir frá þeim sem leyfa okkur það. Það er mjög mikið vesen núna að setja inn myndir á Commons fyrir óvana notendur. Hann Kjartan Pétur Sigurðsson tekur alveg frábærar myndir af íslenskum stöðum (sjá http://photo.blog.is og http://photo.is), oft teknar í lágflugi (ég held að Kjartan hljóti að vera fisflugmaður) eða frá sjónarhorni sem er ekki algengt. Ég spurði Kjartan á blogginu hans um notkun mynda frá honum á Commons, sjá umræðuna hérna. Kjartan svaraði mér:
Ég hins vegar er í vandræðum með að setja inn myndir á Commons frá Kjartani því það er ekki leyft að maður setji inn nema myndir sem maður sjálfur hefur höfundarrétt að. Það er líka mjög mikilvægt að ljósmyndarar eins og Kjartan átti sig á því að þeir eru að afsala sér höfundarrétti með þessu, eina sem þeir geta tiltekið er að það verði að vitna í þá þegar myndin er notuð. Það er ekki hægt að tiltaka að höfundarréttarleyfið gildi bara inn í Wikipedia amk hef ég ekki skilið það þannig. Ég held að íslenska wikipedia yrði miklu betri ef við gætum fengið myndir frá góðum ljósmyndurum eins og Kjartani til að nota í greinum um íslenska staði. Það þarf samt að vera einfaldari leið til að hlaða þeim myndum inn á Commons heldur en ljósmyndarar geri það sjálfir. Ég hef sett mikið af myndum inn á Commons en mér finnst það ennþá afar flókið og óaðgengilegt fyrir eina og eina mynd. En það er frekar einfalt að dæla inn mörgum myndum í einu með sérstökum commons verkfærum. Spurning er hvort einfaldara sé að kenna ljósmyndurum á svoleiðis verkfæri (búa til leiðbeiningar)þannig að rétthafar skrái sig sjálfir á commons og seti sjálfir inn myndir á einfaldan hátt eða fara út í svona OTRS. Ég held að það sé ekki heppilegt að hlaða myndum inn á íslensku wikipedia sem eru með notkunarleyfi bara á íslensku wikipedia. Auk þess sem allt stefnir í að allar myndir fari inn á Commons.--Salvör Gissurardóttir 6. júlí 2008 kl. 19:03 (UTC)
[breyta] TaflaÉg setti inn nýja töflu á greinina um Jakobsveginn, tekna af þýsku wikipedia en þá sjást ekki iw-tenglar og ekki heldur flokkun. Hvað veldur? Masae 7. júlí 2008 kl. 18:11 (UTC)
[breyta] Plötur leika lausum hala hjá SG-hljómplötumGóðan dag. Tvisvar hefur það gerst að breiðskífa (LP-plata) hefur "lent" inn á smáskífu listann (45 rpm) og "skrifað" sig yfir aðra plötu þar með sama listamanni og á stóru plötunni. Eigi veit ég hvers vegna en gæti grunnurinn sem ég nota átt sökina? Í titli beggja plötustærða (LP og 45 rpm) stendur efst; Breiðskífa. Get ég breytt orðinu í; Smáskífa í 45 snúninga listanum án vandkvæða og vonandi komið í veg fyrir fleiri yfirskriftir? Takk - Kristján Frímann Kristjánsson 8. júlí 2008 kl. 11:08 (UTC)
LP platan SG-050 (Svanhildur - Ég kann mér ekki læti) var skyndilega komin í stað smáskífunnar SG-521 (Sextett Ólafs Gauks og Svanhildur - Húrra nú ætti að vera ball). Mér tókst að laga þetta en spurningin stendur enn. Get ég breytt orðinu Breiðskífa í grunninum á 45 snúninga plötunum í orðið Smáskífa og hugsanlega komið með því í veg fyrir fleiri uppákomur? Takk - Kristján Frímann Kristjánsson 8. júlí 2008 kl. 12:00 (UTC)
Ég færði ekki SG-050 yfir á SG-521, einhver annar hefur gert það. Ég lét bara SG-521 aftur á sinn stað. Ég er ekki sérfræðingur í kerfinu ykkar en geri hlutina samkvæmt leiðbeiningum (Steinninn). Ef það er ekki of mikið mál að "búa til vélmenni" til að breyta "Breiðskífa" í "Smáskífa" í 45 rpm listanum, þigg ég það með þökkum. Og í lokin, er "Arnfjörð" tengt Arnarfirði og þá hvar? - Kristján Frímann Kristjánsson 8. júlí 2008 kl. 14:03 (UTC) Ég má kannski ekki spyrja svona persónulega en ég er forvitinn um þetta því ég á báðar mínar ættarrætur í Arnarfirði. Takk - Kristján Frímann Kristjánsson 8. júlí 2008 kl. 14:06 (UTC)
Þetta er grunnurinn fyrir SG-501. Efst stendur {{Breiðskífa. Þarna ætti að standa; Smáskífa og líka við allar hinar 45 rpm plöturnar frá SG-501 til SG-579. Þessar plötur eru jú litlar plötur, 45 snúninga og kallaðar smáskífur en ekki breiðskífur líkt og stóru plöturnar 33 snúninga eru nefndar. Takk -Kristján Frímann Kristjánsson 8. júlí 2008 kl. 14:59 (UTC)
Nú er SG-050 horfin! Gætuð þið verið svo góðir að setja hana aftur inn? Takk -Kristján Frímann Kristjánsson 8. júlí 2008 kl. 15:57 (UTC)
Ef breytingarsagan fyrir Svanhildur - Húrra nú ætti að vera ball er skoðuð finnst þar heil grein þar sem textinn lýsir plötu sem heitir Svanhildur og hljómsveit Ólafs Gauk, myndin sýnir plötu sem heitir Svanhildur - Ég kann mér ekki læti. Það má vera að greinin sem vantar sé grafin í breytingarsögu einhverstaðar. --Ævar Arnfjörð Bjarmason 8. júlí 2008 kl. 16:17 (UTC) [breyta] Kill all Humans^HRobots!Sjá [7]. --Ævar Arnfjörð Bjarmason 8. júlí 2008 kl. 13:00 (UTC) [breyta] TækniorðÉg er að dunda mér við ASP.NET í frístundum (sem eru fáar) og er alltaf að reka mig á það hvað tölvunarfræðiorðaforðinn minn er lítill - marr læri þetta allt á ensku því miður. Í sumum tilföllum er ég (að ég tel) að búa til orð fyrir hin og þessi hugtök. Ef einhver nennir að fara yfir þetta þá væri það fínt. Dæmi um þýðingar frá mér:
Ég gat ekki fundið neitt sniðugt fyrir web controls og user controls, einhverjar uppástungur? --Stefán Örvarr Sigmundsson 10. júlí 2008 kl. 03:18 (UTC)
[breyta] Nauðsynleg viðbótOkkur vantar svona, helst á öll wiki-verkefnin. Þessi viðbót virkar þannig að ákveðnir notendur geta merkt breytingar sem góðar breytingar, svo þegar venjulegur, oftast óinnskráður, notandi er að lesa grein þá sér hann góðu breytinguna, jafnvel þótt svo að aðrir hafi breytt þar á eftir. Ekki rugla þessu við flýtiminnið. Þetta er gert svo að ef annar notandi skemmir grein, eða klúðrar einhverju, þá mun sú breyting ekki sjást ef greinin hefur einhverja ákveðna breytingu merkta sem góða breytingu. --Stefán Örvarr Sigmundsson 11. júlí 2008 kl. 05:58 (UTC) [breyta] Dagatal frá vitlausu áriÞað kemur alltaf lítil dagatal til vinstri frá 2007 þegar smellt er á dag dagsins í dag t.d. 11. júlí. Þetta virðist vera þannig að Snið:JúlíDagatal er miðað við árið 2007. Ég kann ekki að laga þetta þannig að það komi sjálfkrafa rétt ár. Listinn Listi yfir daga ársins er líka miðaður við 2007. Á ensku wikipedia sé ég að það er á þessari síðu en:Template:JulyCalendar sett upp dagatal sem er ekki miðað við ákveðið ár heldur núverandi ár (current year) þannig að það er væntanlega snið sem ekki þarf að uppfæra á hverju ári. það er náttúrulega eina vitið að hafa þannig snið. Getur einhver fundið út úr þessu? --Salvör Gissurardóttir 11. júlí 2008 kl. 12:19 (UTC) Það þarf væntanlega að setja inn svona en:Template:CalendarSingle. Þetta gildir fyrir ár að 2037.Það þarf væntanlega að setja inn sjö snið fyrir á hvaða vikudegi mánuður byrjar: en:Template:Calendar/MonthStartFri--Salvör Gissurardóttir 11. júlí 2008 kl. 12:34 (UTC)
[breyta] Wikimania 2008Wikimania 2008 er að byrja í Alexandríu í Egyptalandi. Hér er dagskráin Vitið þið um einhvern Íslending sem fer þangað? Ég fór bæði á Wikimania í Frankfurt og Boston og vildi óska að ég væri í Egyptalandi núna. Næsta ár verður Wikimania í Argentínu. Eftir því sem ég sé þá verður eitthvað um að atburðir verða sendir út á netinu. Ég finn nú ekki alveg hvar maður sér það og hvaða græjur þarf. --Salvör Gissurardóttir 16. júlí 2008 kl. 16:15 (UTC) Hér er podcast frá ráðstefnunni Wikipedia Weekly 53: The Day Before Wikimania --Salvör Gissurardóttir 17. júlí 2008 kl. 06:22 (UTC) |