1433 - Jón Gerreksson biskup í Skálholti var líflátinn með drekkingu í Brúará eftir að sveinar hans höfðu farið um landið með ribbaldaskap langtímum saman og gengið fram af höfðingjum.
1946 - Áætlunarbifreið hvolfdi og kom upp eldur í henni við Gljúfurá í Borgarfirði. Um borð voru 22 farþegar og slösuðust fimmtán þeirra, en enginn alvarlega og allir komust frá borði, en bíllinn brann til ösku.